16 júní 2010
Snjólaug Sigurðardóttir

Kvenréttindadagurinn 19. júní 2010

Hátíðarhöld á kvenréttindadaginn 19. júní verða í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkurborgar kl. 16:00.  Frekari fróðleik og dagskrá er að finna í neðanverðu pdf-skjali.  Einn dagskrárliður er úrslit hönnunarsamkeppni Skotta og Hönnunarmiðstöðvar Íslands á barmmerki kvennafrídagsins.  Soroptimistasamband Íslands (SI/Í) hefur gefið verðlaunaféð,   kr. 250.000, í þessa hönnunarsamkeppni og mun Margrét Rögnvaldsdóttir, 1. varaforseti og fulltrúi stjórnar SI/Í í Skottufélaginu, tilkynna um úrslit.  Boðskort á hátíðarhöldin hefur verið sent út í klúbbana.

Dagskrá (pdf-skjal)