Klúbbar

Soroptimistaklúbbar á Íslandi eru 17 talsins. Elsti klúbburinn, Soroptimistaklúbbur Reykjavíkur, var stofnaður árið 1959. Nokkur tími leið uns stofnaður var annar klúbbur en Hafnarfjarðar- og Garðabæjarklúbbur var stofnaður árið 1973. Síðan voru klúbbarnir stofnaðir hver af öðrum með nokkuð jöfnu millibili allt þar til 15. klúbburinn var stofnaður en það var Grafarvogskúbbur árið 1994. Nýjasti og yngsti klúbburinn var stofnaður á Suðurlandi í október 2009. 

Útbreiðsla

Flestir klúbbarnir eru á suðvesturhluta landsins. Jafnt og þétt er unnið að útbreiðslustarfi og reynt er að fá konur til að ganga til liðs við samtökin. Í undirbúningi er stofnun klúbba á Suðurlandi og í Húnavatnssýslum og standa vonir til þess að af því geti orðið áður en langt um líður.