Tíundi desember

Tíundi desember er dagur mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna en frá árinu 1956 hefur sá dagur einnig verið alþjóðadagur Soroptimista.

Þennan dag velur forseti Alþjóðasambands Soroptimista verkefni sem hefur þann tilgang að hjálpa konum og börnum sem eru í mjög brýnni þörf fyrir aðstoð. Aðstoðin getur falist í að kosta fræðsluefni eða veita félagslegan og fjárhagslegan stuðning. Víðast hvar í heiminum er söfnunin bundin við frjáls framlög Soroptimista en íslenskir Soroptimistar greiða ákveðna upphæð fyrir hverja systur til þessa verkefnis og er gert ráð fyrir framlagi til verkefnisins í árgjöldum til Landssambandsins. Fjölmörg verkefni hafa verið styrkt í tilefni af þessum degi í áranna rás.

2011

Alice Wells forseti Alþjóðasambands Soroptimista hefur valið "Birthing in Pacific" (Fæðingar í Kyrrahafinu) sem 10. desember ákall. Þetta verkefni miðar að því að auka færni, auka menntun ljósmæðra og bæta aðstöðu til að draga úr dánartíðni mæðra. Nánari upplýsingar er að finna á
http://www.soroptimistinternational.org/our-projects/december-10-appeal/birthinginpacific

2010

10. desember ákall forseta Alþjóðasambands Soroptimista, Hanne Jensbo, bar yfirskriftina: Fjárfestum í framtíðinni. Eflum menntun og leiðtogahæfni kvenna.
Nánari upplýsingar um ákallið er að finna hér: /soroptimistar/upload/files/frettir/akall_forseta_si_2010.pdf

2007

Restoring dignity – Hamlin Fistula Relief Aid Fund Addis Ababa Ethiopia. Verkefnið er herferð til að bæta líf kvenna sem þjást vegna fistils. Fistula – fistill er óeðlileg göng milli tveggja líffæra eða milli líffæris og ytra borðs líkamans. Fistill verður til vegna erfiðleika í fæðingu, vefir deyja og hola myndast þar sem þvag og hægðir ganga stjórnlaust niður. Konur sem þjást af fistli eru oft yfirgefnar af eiginmönnum sínum, útskúfaðar úr samfélaginu og neyddar til að lifa í einangrun frá öðrum og verða oftar en ekki að betla til að komast af.

Hér er grein eftir Ósk Ingvarsdóttur lækni og soroptimista um fistil

2006

Verkefnið beindist að héraðinu Punjab í Pakistan þar sem stúlkur hafa ekki jafnan aðgang að menntun og drengir. Verkefnið fólst í aðstoð til sex grunnskóla á afskekktum, fátækum svæðum í héraðinu til að bæta aðgengi meira en 1000 stúlkna að menntun og betri tækifærum í lífinu. Unnið var í samvinnu við Oxfam GB sem er góðgerðarstofnun í Bretlandi.

2005

Í samvinnu við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina unnu Soroptimistar um allan heim við að fjármagna fyrirbyggjandi úrræði gegn malaríu fyrir barnshafandi konur og ung börn í Zé í Afríkuríkinu Benin. Þar er malaría landlægur ógnvaldur við heilsu ungra barna og mæðra. Malaría er ein algengasta ástæða veikinda og ótímabærra dauðsfalla í Afríku. Keypt voru flugnanet fyrir allar barnshafandi konur og fjölskyldur með ung börn í Zé til að verjast móskítóbiti.

2004

Styrkurinn rann til Æskuskjóls í Ho Chi Minh borg í Víetnam. Æskuskjólið er fyrir heimilislaus börn á aldrinum 8-18 ára, börn sem voru ekki talin þess virði að bjarga í þeirra eigin samfélagi. Mörg barnanna höfðu verið seld í þrælkun eða vændi en voru ekki lengur nothæf, ýmist vegna sjúkdóma eða aldurs. Byggt var heimili fyrir um 500 heimilislaus börn.


 

Meira
Prentvæn útgáfa
 Um vefinn  Veftré         A A A



Hamraborg 10 | Kópavogur | IS-200 | Sími/Tel: (+354) 891-7179 | soroptimist@soroptimist.is