Tengsl við Sameinuðu þjóðirnar
Alþjóðasamband Soroptimista starfar með ýmsum stofnunum Sameinuðu þjóðanna og öðrum frjálsum félagasamtökum.
Soroptimistar eiga ráðgefandi fulltrúa með málfrelsi hjá stofnunum Sameinuðu þjóðanna í New York, París, Genf, Róm og Vín.
Markmið Soroptimista eru þau sömu og markmið Sameinuðu þjóðanna; friður, skilningur meðal þjóða heimsins og stuðningur við mannréttindi.
Alþjóðasamband Soroptimista á ráðgjafaraðild að Efnahags- og félagsmálaráði Sameinuðu þjóðanna (ECOSOC). Ráðgjafaraðild gefur ómetanleg tækifæri til þess að taka þátt í fundum og ná sambandi við fulltrúa stjórnvalda, annarra frjálsra félagasamtaka og við embættismenn Sameinuðu þjóðanna, sérstaklega í málefnum sem tengjast stöðu kvenna.
Hlutverk fulltrúa Soroptimista hjá Sameinuðu þjóðunum er:
- að fylgjast með tilteknum þáttum í starfsemi Sameinuðu þjóðanna til þess að gefa stjórn Alþjóðasambands Soroptimista (SI) nauðsynlegar upplýsingar
- að að koma á framfæri verkefnum frá Alþjóðasambandinu.
Prentvæn útgáfa
