21 júní 2010
Sigríður Ágústsdóttir

Júní útgáfa TIS, The International Soroptimist

Júní útgáfa TIS, The International Soroptimist er komin á veraldarvefinn.

Þar segir ritstjórinn, Sheila Manchester, hversu vel Soroptimistar um heim allan tóku þessari nýbreytni að geta gerst áskrifendur og lesið blaðið á rafrænu formi og að auki fá það sent til sín frítt, beint í pósthólfið. Gerist áskrifendur hér, editor@soroptimistinternational.org

Grein er í blaðinu um langtímaverkefni Alþjóðasambandsins sem framundan eru og kosið verður um í Montreal næsta sumar, Ofbeldi gegn konum eða Menntun og formennska. Sagt er frá tengslum Soroptimista við UNICEF, sagt frá hjálparstarfi á Haiti, grein um starf tólf klúbba í Danmörku vegna loftslagsbreytinga í Kenía og grein er um svokölluð mikrólán eða sms-lán, svo eitthvað sé nefnt.


 Um vefinn  Veftré         A A A

Á döfinni / Coming up

Landssambandsfundur í Mosfellsbæ 28. apríl 2012
31. maí - 3. júní 2012: Afmælishátíð í Búlgaríu
30 June - 8 July 2012: Soroptimist week in Iceland
Gönguferðir Bakka og Selja 2011-2012, sjá dagskrá


Hamraborg 10 | Kópavogur | IS-200 | Sími/Tel: (+354) 891-7179 | soroptimist@soroptimist.is