Við getum betur
Sameiginlegur fundur fjölda samtaka verður í Ráðhúsi Reykjavíkur mánudaginn 8. mars á alþjóðlegum baráttudegi kvenna fyrir friði og jafnrétti.
Hugmyndin að sérstökum baráttudegi kvenna kom fram á átakatímum í upphafi tuttugustu aldar í kjölfar iðnbyltingarinnar á Vesturlöndum. Fólksfjölgun og stéttarátök fæddu af sér róttækar hugmyndir um bætt kjör og víða var barist fyrir kosningarétti kvenna.
Á Íslandi var dagsins líklega minnst fyrst á árshátíð Kvenfélags Sósíalistaflokksins 8. mars 1948. Með nýju kvennahreyingunni á 7. og 8.áratugnum vaknaði áhugi fyrir 8. mars á ný og á kvennaáratugnum (1977) lýstu Sameinuðu þjóðirnar 8. mars Alþjóðlegan baráttudag kvenna fyrir friði og jafnrétti. Mörg undanfarin ár hafa verið haldnir baráttufundir ýmissa samtaka og stéttarfélaga með skeleggri umfjöllun um innlend og erlend mál sem hæst bera hverju sinni og snerta jafnréttis-og friðarmál. Hægt er að fullyrða að þessir kraftmiklu fundir veki töluverða athygli. Þar hefur verið ýtt af stað umræðu út í samfélagið og skilaboð send til stjórnvalda.
Vil jafnframt minna á að konur ætla að byggja friðarbrýr um allan heim 8. mars en helstar skal nefna Millennium brúna í London og Brooklyn brúna í New York en nánari upplýsingar um verkenfið er að finna á vefsíðunni www.womenforwomen.org
Sigríður Ágústsdóttir
upplýsingafulltrúi SE/I
Á döfinni / Coming up
11. - 18. september 2010
2. - 4. október 2010 - Haustfundur í Munaðarnesi
3. október 2010 - Vinadagur Soroptimista
15. - 17. október 2010
Evrópskir vinadagar, Mijas, Costa del Sol, Spáni
24. október 2010 - Dagur Sameinuðu þjóðanna
24. - 25. október 2010 - Kvennafrídagurinn
- Sunnudagur 24.10. - Alþjóðleg ráðstefna í Reykjavík undir yfirskriftinni Konur gegn kynbundnu ofbeldi
- Mánudagur 25.10. - Konur fylkja liði um land allt
10. desember 2010 - Soroptimistadagurinn
10. - 14. júlí 2011
19. alþjóðaþing Soroptimista, Montréal, Québec, Kanada
