Verkefni Evrópuforseta
Soroptimistar sækjast eftir vatni (e. "Soroptimists go for water") er yfirskrift forseta Evrópusambandsins Mariet Verhoef-Cohen 2007-2009. Klúbbar eru hvattir til að sinna a.m.k. einu vatnsverkefni á tímabilinu. Hægt er að vinna með öðrum klúbbum innan sama landssambands eða í öðrum löndum.
Með því að leggja áherslu á vatnið er unnið í tengslum við alþjóðlega áratuginn 2005-2015 sem helgaður er „Vatni fyrir lífið" og þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem eru m.a. þau að vinna að bættu heilsufari kvenna, að lækka dánartíðni barna og að lækka um helming hlutfall þeirra sem ekki hafa aðgang að öruggu neysluvatni og fullnægjandi hreinlæti árið 2015.
Ráðstefna Evrópusambands Soroptimista sem haldin verður í Amsterdam 10.-12. júlí 2009 verður helguð vatni.
Nánari upplýsingar er að finna á vef verkefnisins.
Prentvæn útgáfa