Verkefnamarkmið
Alþjóðasamband Soroptimista setur sér markmið til fjögurra ár í senn sem verkefnaval samtakanna á að taka mið af á hverjum tíma.
Markmið starfstímabilsins 2011-2015
Markmið 1
Alþjóðasamtök Soroptimista vilja bæta líf og stöðu kvenna og stúlkna með menntun, stuðningi og auknum tækifærum.
Leiðir að markmiði:
- Auka aðgengi að formlegum og óformlegum menntunartækifærum.
- Bæta aðgengi að efnahagslegum stuðningi og sjálfbærum atvinnutækifærum kvenna.
- Uppræta ofbeldi á konum og stúlkum og tryggja þátttöku kvenna við lausn deilumála.
- Tryggja að konur og stúlkur njóti fæðuöryggis og aðgangs að bestu fáanlegu heilsu-gæslu.
- Sinna sérstökum þörfum kvenna og stúlkna með því að auka sjálfbæra umhverfis-vernd og milda áhrif loftslagsbreytinga og hamfara.
Markmið 2
Alþjóðasamtök Soroptimista vilja vera alþjóðleg rödd sem vill auka aðgengi kvenna og stúlkna að menntun og leiðtogaþjálfun.
Leiðir að markmiði:
- Styrkja og bæta stöðu Alþjóðasamtaka Soroptimista sem málsvara á öllum stigum.
- Efla virkni og samstarf sem eykur alþjóðlega kynningu og sýnileika
- Alþjóðasamtaka Soroptimista.
- Tryggja að kjarninn í alþjóðlegri kynningarstarfsemi Alþjóðasamtaka Soroptimista endurspeglist jafnt í staðbundinni sem alþjóðlegri starfsemi.
Samþykkt af stjórn Alþjóðasambands Soroptimista og atkvæðisbærum fulltrúum á fundi stjórnar Alþjóðasambands Soroptimista í Montreal 2011.
Sigrún Klara Hannesdóttir Reykjavíkurklúbbi og Sigríður Þórarinsdóttir úr Snæfellsnesklúbbi þýddu úr ensku.
Markmið starfstímabilsins 2007 – 2011 sem voru kölluð leiðarljós í starfsemi Soroptimista um allan heim, voru:
Markmið
Soroptimistar leitast við að tryggja að konur og stúlkur
- njóti jafnræðis og jafnréttis
- lifi í öruggu og heilsusamlegu umhverfi
- hafi aðgang að menntun
- hafi leiðtogahæfni og hagnýta þekkingu
Tilgangur
- Að uppræta fátækt og kynjamismun með því að tryggja konum full félagsleg og efnahagsleg réttindi. (Efnahagsleg og félagsleg þróun)
- Að binda endi á mansal og hvers konar ofbeldi gegn konum og stúlkum. (Mannréttindi og staða konunnar)
- Að tryggja konum og stúlkum aðgengi að heilsugæslu. (Heilbrigðismál)
- Að styðja verkefni og stefnumál sem gætu upprætt HIV/alnæmi, malaríu, berkla og aðra alvarlega sjúkdóma. (Heilbrigðismál)
- Að bæta aðgengi að hreinu vatni, hreinlætisaðstöðu og nauðsynlegu fæðuframboði. (Umhverfismál)
- Að kynna áhrif loftslagsbreytinga og tengja hugmyndir um sjálfbærni inn í persónulega valkosti og hafa áhrif á opinber stefnumál og verkefni. (Umhverfismál)
- Að mæta þörfum kvenna og stúlkna við vopnuð átök og hamfarir, bæði á meðan á þeim stendur og einnig þegar þær eru afstaðnar. (Alþjóðleg vinátta og skilningur)
- Að stuðla að friðvænlegri lausn deilumála, skilningi milli menningarheima og mismunandi kynþátta og fordæma hvers kyns þjóðarmorð og hryðjuverk. (Alþjóðleg vinátta og skilningur)
- Að tryggja jafnt aðgengi að menntun og þjálfun alla ævi. (Menntamál)
- Að tryggja konum framgang í stjórnun, stjórnmálum og ákvarðanatöku. (Efnahagsleg og félagsleg þróun)
Samþykkt af stjórn Alþjóðasambands Soroptimista og atkvæðisbærum fulltrúum á fundi stjórnar Alþjóðasambands Soroptimista í Glasgow 2007.
Sigrún Klara Hannesdóttir Reykjavíkurklúbbi þýddi úr ensku.
Prentvæn útgáfa