Þúsaldarmarkmið Sameinuðu Þjóðanna
Verkefnaval Alþjóðasambands Soroptimista tekur mið af þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu Þjóðanna.
Í September árið 2000, í upphafi nýs árþúsunds, sameinuðust leiðtogar heims í höfuð¬stöðvum sameinuðu þjóðanna í New York og samþykktu Þúsaldaryfirlýsingu Sameinuðu Þjóðanna.
Átta markmið eru skilgreind sem eiga að stuðla að mannsæmandi og sjálfbærri framtíð fyrir alla íbúa heims. Markmiðin eru tímasett og á mælanlegur árangur að nást fyrir árið 2015.
- Eyða fátækt og hungri
- Tryggja að öll börn njóti grunnskólamenntunar
- Vinna að jafnrétti kynjanna og styrkja frumkvæðisrétt kvenna
- Lækka dánartíðni barna
- Vinna að bættu heilsufari kvenna
- Berjast gegn alnæmi, malaríu og öðrum sjúkdómum sem ógna mannkyninu
- Vinna að sjálfbærri þróun
- Styrkja hnattræna samvinnu um þróun
Sjá meira um þúsaldarmarkmiðin á vefsíðu Félags Sameinuðu þjóðanna http://www.2015.is/
Prentvæn útgáfa