Skólastyrkir SI/E

Evrópusamband Soroptimista veitir árlega nokkra skólastyrki. Markmið styrkveitinganna er að efla menntun og stöðu kvenna.

Styrki má veita Soroptimistum eða öðrum konum sem tilnefndar eru af klúbbum eða landssamböndum.

Styrkir eru veittir konum:

  • Til framhaldsnáms eða frekari starfsþjálfunar.
  • Til endurmenntunar eða endurþjálfunar. Forgang hafa þau störf sem ekki eru hefðbundin kvennastörf.
  • Til eflingar starfsmenntunar kvenna í þróunarlöndum.

Upphæð hvers styrks getur numið allt að 10.000 Evrum. Allir klúbbar innan samtakanna fá umsóknareyðublöð. Klúbbarnir sjá um umsóknirnar. Meðal nauðsynlegra fylgiskjala eru meðmæli frá Soroptimista.

Skólastyrkjanefnd Landssambandsins velur út þær umsóknir sem sendar eru Evrópusambandinu. Sérhvert Landssamband má tilnefna tvo umsækjendur á ári. Styrkþegar eru síðan valdir af sendifulltrúaráði Evrópusambands Soroptimista. Styrkþegum ber að skila skýrslu um nám sitt og nýtingu styrksins.

Skólastyrkir 2012 - 2013 (umsóknarfrestur rennur út á misjöfnum tíma, fyrst 1. desember 2011).

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar vegna skólastyrkja Evrópusambands Soroptimista - SI/E fyrir árið 2012-2013 má nálgast hér

Hægt er að nálgast umsóknareyðublöðin og aðrar upplýsingar varðandi styrkina með því að smella á skjölin hér að neðan.

Bréf v/styrkveitinga á ensku: SHP_Letter_2011_E

Umsóknareyðublað v/skólastyrks (enska): Scholarship Application form 2011 (fyrir 15. janúar 2012)

Umsóknareyðublað í sjóð Dr Suzanne Noël (enska): Dr_Noel_Fund_Application_form (fyrir 29. febrúar 2012)

Lágmarksskilyrði til styrkveitinga úr Dr Suzanne Noël sjóði (enska): Dr_Suzanne_Noel_Fund_Conditions 

Meira
Prentvæn útgáfa
 Um vefinn  Veftré         A A A


Hamraborg 10 | Kópavogur | IS-200 | Sími/Tel: (+354) 891-7179 | soroptimist@soroptimist.is