Norrænir vinadagar

Norrænir vinadagar eru haldnir í einhverju hinna fimm Norðurlanda annað hvert ár, árin sem hvorki er Evrópusambandsþing né Alþjóðaþing. Norrænir vinadagar hafa verið vinsæll vettvangur fyrir Soroptimista til að hittast, stofna til nýrra kynna og skiptast á skoðunum. Auk þess eru alltaf í boði skemmtilegar skoðunarferðir sem standa systrum til boða.

Upphaf norrænna vinadaga  
Upphaf norrænna vinadaga má rekja til ársins 1974 þegar Agnes Grundahl, þáverandi forseti danska landssambandsins, fékk þá hugmynd að standa fyrir vináttumóti Soroptimista á Norðurlöndum. Hugmynd hennar var að systur þyrftu ekki að hafa sérstaka málakunnáttu til að geta tekið þátt í mótinu og væri það haldið fyrir alla Soroptimista, ekki aðeins fyrir formenn, sendifulltrúa eða aðra embættismenn. Þarna kæmu saman venjulegir klúbbmeðlimir, þar sem hægt væri að njótra góðrar samveru og vináttu og gefa sér tíma til að tala saman. Fengnir yrðu góðir fyrirlesarar sem fjölluðu um þau mál sem væru í brennidepli hverju sinni og umræður færu fram um sameiginleg þjóðfélagsmál.

Framvinda norrænna vinadaga
Fyrsta mótið var haldið sumarið 1974 í Danmörku. Árið 1976 bauð síðan Finnland til norrænna daga sem síðan hafa verið haldnir annað hvert ár til skiptis hjá Norðurlöndunum fimm. Árið 1996 voru vinadagarnir haldnir í Naantali í Finnlandi, síðan á Íslandi 1998, í Lillehammer í Noregi árið 2000, í Kalmar í Svíþjóð 2002 og í Helsingör í Danmörku 2004. Þá var tekin sú ákvörðun að tungumál norrænna vinadaga skyldi framvegis vera enska því þrátt fyrir góða tungumálakunnáttu hefur norrænum systrum ekki gengið of vel að skilja allar þær ólíku mállýskur sem finnast á þessu málsvæði. Það var fleira sem breyttist en tungumálið á norrænum vinadögum sem haldnir voru í Vaasa í Finnlandi í júní 2006 því þá gafst systrum frá Eistlandi, Lettlandi og Litháen tækifæri til að taka þátt.

Norrænir vinadagar í Reykjavík og Bergen
Norrænir vinadagar voru haldnir með miklum sóma í Reykjavík í júní 2008. Það var í fjórða sinn sem íslenskir Soroptimistar buðu til norrænna vinadaga. Alls sátu um 200 gestir ráðstefnuna og var eftirminnileg öllum sem sóttu og erindi fyrirlesara voru mjög áhugaverð. Norrænir vinadagar á Íslandi hafa alltaf þótt vel heppnaðir í alla staði. Hér er samantekt um þau fjögur skipti sem norrænir vinadagar hafa verið haldnir á Íslandi.
Helsta nýmælið á ráðstefnunni að þessu sinni var sameiginlegt mansalsþema sem var kynnt og munu allir norrænir Soroptimistar vinna að því á árunum 2008-2012. Í lok ráðstefnunnar undirrituðu forsetar allra norrænu landssambandanna síðan yfirlýsingu um þau tvö baráttumál Soroptimista sem ráðstefnan lagði mesta áherslu á með hvatningu til stjórnvalda um að fjölga konum við ákvarðanatöku og að innleiða aðgerðir sem beinast gegn mansali innan kynlífsiðnaðarins og mansali til nauðungarvinnu. Norrænir vinadagar verða haldnir í Bergen í júní 2010.

Meira
Prentvæn útgáfa
 Um vefinn  Veftré         A A A


Hamraborg 10 | Kópavogur | IS-200 | Sími/Tel: (+354) 891-7179 | soroptimist@soroptimist.is