16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi

 

Soroptimistasamband Íslands hefur undanfarin ár tekið þátt í alþjóðlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi sem haldið er dagana 25. nóvember – 10. desember. Markmið átaksins er að uppræta allt kynbundið ofbeldi og ár hvert er athygli beint að einstöku málefni. Dagsetningar átaksins eru táknrænar, 25. nóvember er alþjóðlegur dagur gegn ofbeldi gegn konum og 10. desember er alþjóðlegur mannréttindadagur. Ofbeldi gegn konum og mannréttindi tengjast þannig saman í orði og verki og mannréttindabrotin sem felast í slíku ofbeldi eru dregin fram.  

Markmið átaksins

Átakið er háð til að kalla eftir afnámi alls ofbeldis gegn konum, meðal annars með því að:
• auka vitund stjórnvalda um ofbeldi gegn konum sem mannréttindabrots
• styrkja svæðisbundið starf þeirra sem vinna gegn ofbeldi gegn konum
• koma á tengslum á milli svæðisbundins starfs og alþjóðastarfs sem miðar að því að binda endi á ofbeldi gegn konum
• mynda sameiginlegan vettvang til að þróa og deila nýjum og áhrifaríkum aðgerðum
• sýna samtakamátt kvenna um allan heim gegn ofbeldi gegn konum
• þróa aðferðir og tæki til að þrýsta á stjórnvöld að uppfylla skuldbindingar um afnám alls ofbeldis gegn konum.

Árangur

Yfir 1.700 samtök í 137 löndum hafa tekið þátt í 16 daga átakinu sem hófst árið 1991. Fjöldi íslenskra félagasamtaka tekur þátt í átakinu. Góður árangur hefur náðst á Íslandi því kynbundið ofbeldi hefur verið mjög til umfjöllunar, bæði hjá stjórnvöldum og almenningi. Í kjölfar átaksins árið 2004 voru gerðar tillögur að aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi sem sendar voru einstökum fagráðherrum. Voru þessar tillögur meðal annars hafðar til hliðsjónar við gerð aðgerðaáætlunar ríkisstjórnar Íslands vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis sem samþykkt var árið 2006.

Á ráðstefnu Alþjóðasambands Soroptimista í Glasgow í júlí 2007 var haldin málstofa um ofbeldi gegn konum. Þar hélt Ásgerður Kjartansdóttir forseti erindi um samvinnu íslenskra félagasamtaka í 16 daga átakinu. Titill erindisins er 16 days of activism against gender violence - cooperation of NGOs in Iceland 

Mannréttindaskrifstofa Íslands hefur umsjón með átakinu og hefur tekið saman upplýsingar um átak fyrri ára.


 Um vefinn  Veftré         A A A

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 



Hamraborg 10 | Kópavogur | IS-200 | Sími/Tel: (+354) 891-7179 | soroptimist@soroptimist.is