Friðarkort

Soroptimistasamband Íslands lét í stjórnartíð Sigríðar Þórarinsdóttur (2004-2006) hanna friðarkort sem allir klúbbar geta selt og notað ágóðann til friðarverkefna sinna. Til eru tvær stærðir korta. Christopher Lund gaf myndina sem er af fjörugrjóti, Sigríður Líba Ásgeirsdóttir, Reykjavíkurklúbbi, hannaði útlit kortanna og Vigdís Einarsdóttir, Bakka- og Seljaklúbbi, samdi ljóð sem prýðir stærra kortið. Kortin er hægt að nálgast hjá Ragnheiði Víglundsdóttur Snæfellsnessklúbbi.

Meira
Prentvæn útgáfa

16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi

 

Soroptimistasamband Íslands hefur undanfarin ár tekið þátt í alþjóðlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi sem haldið er dagana 25. nóvember – 10. desember. Markmið átaksins er að uppræta allt kynbundið ofbeldi og ár hvert er athygli beint að einstöku málefni. Dagsetningar átaksins eru táknrænar, 25. nóvember er alþjóðlegur dagur gegn ofbeldi gegn konum og 10. desember er alþjóðlegur mannréttindadagur. Ofbeldi gegn konum og mannréttindi tengjast þannig saman í orði og verki og mannréttindabrotin sem felast í slíku ofbeldi eru dregin fram.  

Markmið átaksins

Átakið er háð til að kalla eftir afnámi alls ofbeldis gegn konum, meðal annars með því að:
• auka vitund stjórnvalda um ofbeldi gegn konum sem mannréttindabrots
• styrkja svæðisbundið starf þeirra sem vinna gegn ofbeldi gegn konum
• koma á tengslum á milli svæðisbundins starfs og alþjóðastarfs sem miðar að því að binda endi á ofbeldi gegn konum
• mynda sameiginlegan vettvang til að þróa og deila nýjum og áhrifaríkum aðgerðum
• sýna samtakamátt kvenna um allan heim gegn ofbeldi gegn konum
• þróa aðferðir og tæki til að þrýsta á stjórnvöld að uppfylla skuldbindingar um afnám alls ofbeldis gegn konum.

Árangur

Yfir 1.700 samtök í 137 löndum hafa tekið þátt í 16 daga átakinu sem hófst árið 1991. Fjöldi íslenskra félagasamtaka tekur þátt í átakinu. Góður árangur hefur náðst á Íslandi því kynbundið ofbeldi hefur verið mjög til umfjöllunar, bæði hjá stjórnvöldum og almenningi. Í kjölfar átaksins árið 2004 voru gerðar tillögur að aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi sem sendar voru einstökum fagráðherrum. Voru þessar tillögur meðal annars hafðar til hliðsjónar við gerð aðgerðaáætlunar ríkisstjórnar Íslands vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis sem samþykkt var árið 2006.

Á ráðstefnu Alþjóðasambands Soroptimista í Glasgow í júlí 2007 var haldin málstofa um ofbeldi gegn konum. Þar hélt Ásgerður Kjartansdóttir forseti erindi um samvinnu íslenskra félagasamtaka í 16 daga átakinu. Titill erindisins er 16 days of activism against gender violence - cooperation of NGOs in Iceland 

Mannréttindaskrifstofa Íslands hefur umsjón með átakinu og hefur tekið saman upplýsingar um átak fyrri ára.

Meira
Prentvæn útgáfa

San Marco-verkefnið í Rúanda

San Marco-verkefni er samstarfsverkefni Soroptimistaklúbbs Kigali í Rúanda og San Marino-klúbbsins á norðurhluta Ítalíu með dyggri fjárhagsaðstoð klúbba, landssambanda og einstaklinga innan Evrópusambands Soroptimista.

Um er að ræða uppbyggingu á

  • barnaskóla
  • heimavist fyrir munaðarlaus börn og börn af landsbyggðinni
  • íbúðum fyrir ekkjur sem misstu allt sitt í þjóðarmorðunum 1994
  • kvennaathvarfi
  • fölnotahúsi sem nýtist fyrir fullorðinsfræðslu og mötuneyti

Fjölnotahúsið er jafnframt hugsað til fjáröflunar fyrir starfsemina þar sem möguleiki er á að leigja út aðstöðu til veisluhalda. Einnig eru uppi hugmyndir um að þar verði boðið upp á grunnheilbrigðisþjónustu s.s. fræðslu um hreinlæti, getnaðarvarnir og umönnun ungbarna.

Samvinna þriggja forseta og íslenskra systra

Soroptimistasamband Íslands og íslenskir klúbbar hafa stutt verkefnið með myndarlegum hætti. Hafdís Karlsdóttir Kópavogsklúbbi, forseti 2002-2004, gaf peninga sem hún fékk í fimmtugsafmælisgjöf til verkefnisins og tók þátt í friðarhlaupinu árið 2005. Sigríður Þórarinsdóttir Snæfellsnessklúbbi, forseti 2004-2006, tók upp merkið frá Hafdísi og mætti í friðarhlaupið árið 2006. Hún ákvað að forsetaframlag hennar skyldi renna til verkefnisins og beitti sér fyrir því að allar íslenskar systur legðu fram fé til uppbyggingar á svæðinu. Það kom í hlut Ásgerðar Kjartansdóttur Reykjavíkurklúbbi, forseta 2006-2008 að biðla til klúbba um fjárframlög. Það tókst með miklum myndarbrag svo eftir var tekið. Tengiliður íslenskra systra við verkefnið, Sigríður Þórarinsdóttir Snæfellsnessklúbbi, hefur gert grein fyrir stöðu mála og skýrt frá því að fjárframlag íslenskra Soroptimista hafi verið notað til að útbúa hreinlætisaðstöðu og til að kaupa bekkina í fjölnotahúsið en þá má einmitt sjá á myndinni hér til hliðar.
Ásgerður Kjartansdóttir Reykjavíkurklúbbi, forseti 2006-2008 ákvað jafnframt að forsetaframlag hennar árið 2008 skyldi renna til verkefnisins. Samvinna þriggja forseta og íslenskra systra hefur því skilað ríkulegum árangri á svæðinu og við megum vera stoltar af framlagi okkar.

Heimsókn Soroptimista til Rúanda í maí 2008

Í maí fóru átta Soroptimistasystur til Rúanda í tengslum við árlegt friðarmaraþon sem haldið er í höfuðborginni Kigali og tóku fimm systur þátt í skemmtiskokki. Var öll ferðin afskaplega skemmtileg og fróðlegt að kynnast fjölbreyttum verkefnum Soroptimistasystra í landinu. Hópurinn hafði meðferðis stílabækur pennaveski, penna og fótbolta. Var gjöfunum skipt á alla klúbbana í landinu. Auk þess var klúbbnum í Kigali færð peningagjöf, 3.100 evrur frá íslenskum klúbbum til frekari uppbyggingar San Marco-verkefnsins. Var sérlega ánægjulegt að sjá byggingarnar á svæðinu en þar hefur frá upphafi skipulagningar verið hugað að sjálfbærni verkefnisins. Soroptimistar í Rúanda skipulögðu dagskrá og ferðalag um landið. Ljóst er að vart var hægt að komast nær þjóðarsál Rúanda en hér var í boði og einstakt tækifæri sem íslenskum systrum bauðst með að taka þátt. 

Meira
Prentvæn útgáfa
 Um vefinn  Veftré         A A A

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 



Hamraborg 10 | Kópavogur | IS-200 | Sími/Tel: (+354) 891-7179 | soroptimist@soroptimist.is