Alþjóðleg verkefni

Soroptimistar hafa frá upphafi starfað að alþjóðlegum verkefnum. Þar ber hæst aðstoð við flóttamenn og forvarnarstörf. Fyrsta sameiginlega verkefni Evrópusambands Soroptimista var unnið í tilefni af 50 ára afmæli samtakanna árið 1971. Á alþjóðaþingi í Bretlandi 1975 var í fyrsta sinn ákveðið að allir Soroptimistar legðu fé í eitt sameiginlegt verkefni. Síðan hefur verið ákveðinn stuðningur við nýtt verkefni á hverju alþjóðaþingi á fjögurra ára fresti.

Project Sierra – A Family and a Future 2007-2011

Verkefnið er unnið í Sierra Leone í Vestur-Afríku í samstarfi við Hope and Homes for Children. Sierra Leone búar eru að byggja upp landið eftir margra ára stríðsátök og gengur verkefnið út á að styðja þá einstaklinga sem búa við hvað mesta örbirgð og veita þeim m.a. menntun og heilsugæsluþjónustu. Sjónum verður beint að ungum einstæðum mæðrum, sem urðu fórnarlömb kynlífsþrælkunar í stríðinu, götubörnum yngri er 12 ára og fjölskyldum þar sem hætta er á upplausn vegna fátæktar. Nánari upplýsingar er að finna á  www.projectsierra.org og í bréfi frá fóstru verkefnisins á Íslandi (pdf-skjal).

Project Independence – Women Survivors of War 2003-2007

Alþjóðaverkefni áranna 2003-2007 var Project Independence – Women Survivors of War eða konur í kjölfar stríðsátaka. Verkefnið, sem var unnið í samstarfi við Women for Women International, fólst í að styðja konur til sjálfsbjargar, sem hafa liðið vegna stríðsátaka í Afganistan, Bosníu-Herzegovínu og Rúanda. Í stríði eru það ekki konur og börn sem eru gerendurnir, þau eru fórnarlömbin, 80% flóttamanna eru konur og börn og 70% einstaklinga sem lifa í sárustu fátækt eru konur. Voru konur á þessum svæðum aðstoðaðar við að byggja upp nýtt líf og þeim skapað sjálfstæði með því að útbúa aðstöðu fyrir þær til að vinna og mennta sig.

Auk fjárhagslegs stuðnings var veittur tilfinningalegur stuðningur í gegnum bréfaskriftir og tóku 19 íslenskir Soroptimistar að sér að skrifast á við jafnmargar konur í Afghanistan, eitt bréf á mánuði í eitt ár og veittu þeim styrk og samkennd. Verkefnið var mjög vel heppnað og víðtækt. Mikill fjöldi kvenna naut þjálfunar og fræðslu og fengu lán til að koma af stað sjálfstæðri atvinnustarfsemi. Alls voru 47 bréfahópar stofnaðir til að skrifast á við konur í Afganistan, Bosníu og Rúanda. Lesa má um fyrri alþjóðaverkefni Soroptimista á vef Alþjóðasambandsins. Hægt er að styrkja konur í Afganistan, Bosníu-Herzegovínu og Rúanda áfram í gegnum samtökin Women for Women International.


 

Meira
Prentvæn útgáfa
A A A


Hamraborg 10 | Kópavogur | IS-200 | Sími/Tel: (+354) 891-7179 | soroptimist@soroptimist.is