Vinaklúbbar

Liður í því að halda samböndum og vináttutengslum í starfi allra Soroptimista er að stofna til vinaklúbbatengsla innan og á milli heimshlutasambanda en vinaklúbbar eru lykill að alþjóðlegum Soroptimistaheimi. Klúbbar ættu að eiga í það minnsta þrjá vinaklúbba á mismunandi stöðum en þó ekki fleiri en klúbburinn ræður við. Mælt er með að klúbbar komi upp vinaklúbbasamböndum í hverju heimshlutasambandi.

Stofnað til vinaklúbbatengsla

Allir klúbbar geta átt vinaklúbba í öðrum löndum. Aðalskrifstofa Evrópusambands Soroptimista (SEP) skráir öll vinaklúbbatengsl í gagnagrunn sambandsins. Hugmyndin um vinaklúbbatengsl þarf að vera samþykkt af öllum í klúbbunum áður en sambandið kemst á.

Ef báðir klúbbar sem óska eftir vinaklúbbatengslum eru í Evrópusambandinu og allar systur í báðum klúbbum eru búnar að samþykkja vinaklúbbasambandið er nóg að báðir klúbbar sendi bréf því til staðfestingar til SEP sem heldur utan um skrá um vinaklúbba og sendir staðfestingu um það til klúbbanna. SEP hefur einnig milligöngu um að koma á vinaklúbbatengslum og útvegar klúbbum eyðublöð sem alltaf þarf að fylla út til að staðfesta vinatengsl.

Samband vinaklúbba

Eftir að vinatengsl hafa komist á er mikilvægt að kynna klúbbinn t.d. með með því að senda hópmynd af systrum, ásamt lista með nöfnum og starfsheitum, ágrip af sögu klúbbsins og helstu verkefnum hans. Tilnefnið systur í vinaklúbbanefnd sem sér um samskipti en reynið að virkja allar systur og hafið í huga að halda vinatengslunum lifandi. Það má gera með gagnkvæmum heimsóknum t.d. þegar afmæli eða önnur tímamót eru hjá klúbbum. Ein meginhugmynd vinatengsla er möguleikinn á að vinna að sameiginlegu verkefni eða að styðja við verkefni vinaklúbbs sem hægt er að gera með ýmsu móti. Auk þess er hægt að skiptast á hugmyndum að verkefnum og reynslu úr starfsemi en slík samskipti eru oft mjög gjöful. Vinaklúbbar geta einnig verið prýðis vettvangur til nemendaskipta og geta veitt ungu fólki tækifæri til að ferðast.

Ræktarsemi

Reynið að styrkja vinasamband milli klúbba og sýna umhyggju í verki. Látið í ljósi áhuga á klúbbsystrum og landi þeirra. Ræktið vinaklúbbatengslin, haldið reglulegu sambandi og stuðlið þannig að gefandi samskiptum.

Nánari upplýsingar má finna í skrifum Kristínar Einarsdóttur í Handbók um Soroptimistahreyfinguna, júlí 2003, bls. 45-49 og á vef Evrópusambands Soroptimista


 Um vefinn  Veftré         A A A


Hamraborg 10 | Kópavogur | IS-200 | Sími/Tel: (+354) 891-7179 | soroptimist@soroptimist.is