Verkefnasvið

Starfsemi Soroptimistaklúbba um allan heim er á sex verkefnasviðum og starfa jafnmargir verkefnastjórar í hverjum klúbbi.

Hlutverk verkefnastjóra
  • Eru samábyrgir stjórn klúbbs í því að efla starfsemi á sínu verkefnasviði
  • Gefa klúbbsystrum upplýsingar um þróunina á þeirra tiltekna sviði.

Á fjögurra ára fresti gefur Alþjóðasamband Soroptimista út verkefnakjarna sem er leiðarljós í starfsemi Soroptimista um allan heim. Núgildandi verkefnakjarni er fyrir starfsárin 2007-2011.

Verkefnasviðin eru

  • Alþjóðleg vinátta og skilningur  -  Alþjóðlegur skilningur á menningu og þjóðum með samskiptum og gagnkvæmum stuðningi
  • Efnahags- og félagsleg þróun  -  Bætt lífskjör einstaklinga og hópa með því að mæta grunnþörfum þeirra
  • Heilbrigðismál  -  Grundvallarheilbrigði, líkamlegt, andlegt og tilfinningalegt
  • Mannréttindi og staða konunnar  -  Valfrelsi með ábyrgð og jöfn tækifæri fyrir alla
  • Mennta- og menningarmál  -  Réttur hvers einstaklings ævilangt til menntunar og menningar
  • Umhverfismál  -  Verndun og umbætur á líffræðilegum skilyrðum í mannlegu samfélagi
Meira
Prentvæn útgáfa
 Um vefinn  Veftré         A A A


Hamraborg 10 | Kópavogur | IS-200 | Sími/Tel: (+354) 891-7179 | soroptimist@soroptimist.is