Verkefnakjarni Alþjóðasambands Soroptimista (Program Focus) 2007-2011

Verkefnakjarni er leiðarljós í starfsemi Soroptimista um allan heim starfsárin 2007-2011.
 
Hlutverk

Soroptimistar hvetja til aðgerða og skapa tækifæri til að breyta lífi kvenna og stúlkna með fjölþjóðlegu samstarfi og alþjóðlegu félaganeti. Soroptimistar hvetja til jafnræðis og jafnréttis; skapa öruggt og heilsusamlegt umhverfi; auka aðgengi að menntun; efla leiðtogahæfni og hagnýta þekkingu til sjálfbærrar framtíðar.

Markmið

Soroptimistar leitast við að tryggja að konur og stúlkur

  • njóti jafnræðis og jafnréttis
  • lifi í öruggu og heilsusamlegu umhverfi
  • hafi aðgang að menntun
  • hafi leiðtogahæfni og hagnýta þekkingu
Tilgangur
  • Að uppræta fátækt og kynjamismun með því að tryggja konum full félagsleg og efnahagsleg réttindi. (Efnahagsleg og félagsleg þróun)
  • Að binda endi á mansal og hvers konar ofbeldi gegn konum og stúlkum. (Mannréttindi og staða konunnar)
  • Að tryggja konum og stúlkum aðgengi að heilsugæslu.  (Heilbrigðismál)
  • Að styðja verkefni og stefnumál sem gætu upprætt HIV/alnæmi, malaríu, berkla og aðra alvarlega sjúkdóma. (Heilbrigðismál)
  • Að bæta aðgengi að hreinu vatni, hreinlætisaðstöðu og nauðsynlegu fæðuframboði. (Umhverfismál) 
  • Að kynna áhrif loftslagsbreytinga og tengja hugmyndir um sjálfbærni inn í persónulega valkosti og hafa áhrif á opinber stefnumál og verkefni. (Umhverfismál)
  • Að mæta þörfum kvenna og stúlkna við vopnuð átök og hamfarir, bæði á meðan á þeim stendur og einnig þegar þær eru afstaðnar. (Alþjóðleg vinátta og skilningur)
  • Að stuðla að friðvænlegri lausn deilumála, skilningi milli menningarheima og mismunandi kynþátta og fordæma hvers kyns þjóðarmorð og hryðjuverk.  (Alþjóðleg vinátta og skilningur)
  • Að tryggja jafnt aðgengi að menntun og þjálfun alla ævi. (Menntamál)
  • Að tryggja konum framgang í stjórnun, stjórnmálum og ákvarðanatöku. (Efnahagsleg og félagsleg þróun)

    Samþykkt af stjórn Alþjóðasambands Soroptimista og atkvæðisbærum fulltrúum á fundi stjórnar Alþjóðasambands Soroptimista í Glasgow 2007.

    Sigrún Klara Hannesdóttir Reykjavíkurklúbbi þýddi úr ensku.

    Kynning á verkefnakjarna (PowerPoint)


     

    Meira
    Prentvæn útgáfa
    A A A


    Hamraborg 10 | Kópavogur | IS-200 | Sími/Tel: (+354) 891-7179 | soroptimist@soroptimist.is