Uppbygging samtakanna
Soroptimist International nefnist á íslensku Alþjóðasamband Soroptimista.
Alþjóðaforseti er kosinn til tveggja ára í senn og það er í reynd hann sem leggur línurnar, kemur með ný viðhorf og ferska strauma, enda kemur ætíð nýr forseti frá nýju heimshlutasambandi. Núverandi forseti Alice Wells, 2011-2013, frá Ameríska sambandinu.
Alþjóðaforseti hefur sér til fulltingis alþjóðastjórn sem í eru, auk stjórnar Alþjóðasambandsins, þrír fulltrúar (núverandi, fyrrverandi og verðandi forsetar) frá heimshlutasamböndunum fjórum. Í alþjóðasamtökunum eru 90.000 félagar í rúmlega 3000 klúbbum sem mynda þessi fjögur heimshlutasambönd. Stöðugt bætast við ný lönd, sérstaklega í Austur-Evrópu.
Forseti SIE 2011-2013 er Kathy Kaaf frá Þýskalandi og hennar áhersla er á verkefnið „Soroptimists go for water and food“.
Prentvæn útgáfa