Skipulag Alþjóðasambands Soroptimista
Alþjóðaforseti er kosinn til tveggja ára í senn og leggur hann línurnar um starfsemi Soroptimista, kemur með ný viðhorf og ferska strauma enda kemur ætíð nýr forseti frá nýju heimshlutasambandi. Alþjóðaforseti hefur sér til fulltingis alþjóðastjórn sem í eru, auk stjórnar Alþjóðasambandsins, þrír fulltrúar (núverandi, fyrrverandi og verðandi forsetar) frá heimshlutasamböndunum fjórum.
Alþjóðasamband Soroptimista byggist upp af fjórum heimshlutasamböndum sem gerir sambandið í senn fjölbreytilegra og lýðræðislegra. Heimshlutasamböndunum eru sett sameiginleg lög og reglur af stjórn Alþjóðasambandsins en innan þess lagaramma getur hvert samband sett sér sínar eigin reglur.
Soroptimistasamband Íslands er hluti af Evrópusambandi Soroptimista og lýtur lögum þess og reglum. Félagar geta þeir einir orðið sem klúbbur býður þátttöku. Soroptimistar geta sótt fundi hjá hvaða klúbbi sem er, hvar sem er í heiminum, og sótt þing og mót víða um heim.
Alþjóðasamband Soroptimista hefur virkt samstarf við stofnanir Sameinuðu þjóðanna.
Prentvæn útgáfa
Heimshlutasamböndin:
- Ameríska Soroptimistasambandið (Soroptimist International / Americas)
- Evrópusamband Soroptimista (Soroptimist International / Europe)
- Bresk-írska Soroptimistasambandið (Soroptimist Intnernational / Great Britain and Ireland)
- Soroptimistasamband Suðvestur Kyrrahafssvæðisins (Soroptimist International / South West Pacific)