Sjóðir
Sjóðir á vegum Soroptimistasambands Íslands
Ferðasjóður
Tilgangur sjóðsins er að styrkja íslenska Soroptimista til þátttöku í norrænni samvinnu á vegum Soroptimistasamtakanna og til að sækja fundi og ráðstefnur sem haldnar eru á vegum Soroptimista og ávinningur er talinn vera af að sækja.
Systrasjóður
Tilgangur sjóðsins er að styrkja Soroptimistasystur í neyðartilfellum, t.d. vegna slysa, veikinda eða andláts í fjölskyldunni og/eða í öðrum sambærilegum tilvikum.
Sjóðir á vegum Evrópusambands Soroptimista
Námsstyrkjasjóður (Scholarship Fund)
Klúbbar og landssambönd bjóða styrki til kvenna vegna frekara náms.
Evrópusamband Soroptimista býður landssamböndum að senda inn umsóknir fyrir tvo umsækjendur árlega. Styrkþegar mega vera Soroptimistar eða aðrir, á hvaða aldri sem er og með hvaða starfsferil sem er að baki. Umsóknir þurfa að berast skólastyrkjanefnd Soroptimistasambands Íslands á þar til gerðum eyðublöðum eigi síðar en 1. desember ár hvert. Nánari upplýsingar um úthlutun skólastyrkja.
Viðlagasjóður (Action Fund)
Tilgangur sjóðsins er að leggja fram skyndiaðstoð þegar um er að ræða náttúruhamfarir eða annað neyðarástand og veita stuðning varðandi menntun kvenna frá þróunarlöndunum þar sem Soroptimistaklúbbar starfa.
Prentvæn útgáfa