Saga Soroptimista

Soroptimistahugsjónin verður til um svipað leyti í Bandaríkjunum og Bretlandi eftir fyrri heimsstyrjöldina. Ástæðuna má rekja til þess að konur höfðu látið meira að sér kveða í fyrri heimsstyrjöldinni og eftir að henni lauk voru konur í lykilstöðum á ýmsum sviðum og höfðu þörf fyrir vettvang til að láta að sér kveða. Fyrsti klúbburinn var stofnaður með áttatíu konum í Oakland í Kaliforníu árið 1921.

Á árinu 1924 voru fyrstu klúbbarnir stofnaðir í Evrópu, í London og París.

Nafn dr. Suzanne Noël, sem var læknir að mennt, er órjúfanlega tengt sögu Soroptimista en hún átti mestan þátt í útbreiðslu samtakanna á fyrstu árunum fram til 1930 en á þeim tíma breiddist hreyfingin til Kanada og um alla Evrópu.

Á árinu 1929 urðu til heimshlutasamböndin tvö Ameríkusambandið og Evrópusambandið.

Árið 1934 klauf Bretland sig frá Evrópusambandinu og stofnaði Bresk-írska sambandið sem varð þriðja heimshlutasambandið.

Árið 1978 varð til fjórða heimshlutasambandið en það eru klúbbar á Suðvestur Kyrrahafssvæðinu.

Alþjóðaþinger haldið fjórða hvert ár. Næsta þing verður haldið í Montreal í Kanada í júlí 2011 en síðast var alþjóðaþingið haldið í Glasgow í Skotlandi í júlí 2007.

Soroptimistasamband Íslands var stofnað 1973 en fyrsti klúbburinn á Íslandi, Soroptimistaklúbur Reykjavíkur, var stofnaður 19. september 1959.

Meira
Prentvæn útgáfa
A A A


Hamraborg 10 | Kópavogur | IS-200 | Sími/Tel: (+354) 891-7179 | soroptimist@soroptimist.is