Hvatning og markmið
Hvatning
- Sýnum drenglyndi og verum einlægar í vináttu
- Verum reiðubúnar til hjálpar og þjónustu
- Sýnum í verki skilning og friðarvilja
- Setjum markið hátt og vinnum störf okkar með sæmd og ábyrgðartilfinningu
Markmið Soroptimista eru
- Að vinna að bættri stöðu kvenna
- Að gera háar kröfur til siðgæðis
- Að vinna að mannréttindum öllum til handa
- Að vinna að jafnrétti, framförum og friði, með alþjóðlegri vináttu og skilningi
Soroptimistar skulu beita sér fyrir
- Að veita þjónustu í heimabyggð, heimalandi og á alþjóðavettvangi
- Að taka virkan þátt í ákvarðanatöku hvarvetna í þjóðfélaginu
Soroptimistar vinna að framgangi markmiða sinna í starfi sínu bæði heima fyrir og á alþjóðavettvangi.
Hver klúbbur velur sér verkefni við hæfi og tekur mið af eigin aðstæðum og verkefnakjarna Alþjóðasambandsins.
Prentvæn útgáfa