Norrænir vinadagar í Bergen 2010
11.- 13. júní voru haldnir norrænir vinadagar í Bergen í Noregi. Frá Íslandi fóru Guðrún Erla Björgvinsdóttir forseti, Arnheiður Ingólfsdóttir, Bakka- og Seljaklúbbi, og Heiður Vigfúsdóttir, Reykjavíkurklúbbi, ásamt eiginmanni sínum Birgi Guðjónssyni.
Forsetafundur
var haldinn kl. 10:00-17:00 á föstudeginum og fjallaði hann að mestu um yfirlýsinguna sem skrifað var undir á vinadögum í Reykjavík 2008 um að vinna gegn mansali og öllu ofbeldi á konum.
Á laugardeginum fluttu allir forsetar skýrslu um það sem gert hefur verið í hverju landi frá 2008 til dagsins í dag. Þá voru einnig fluttar skýrslur um "Soroptimists go for water" og Sierra Leone verkefnin. Eftir hádegismat á laugardeginum gengu konur fylktu liði niður í miðbæ Bergen, allar klæddar einhverju purpuralitu og mótmæltu þannig mansali og öllu ofbeldi á konum.
Á laugardagskvöldinu var hátíðarkvöldverður og af þeim 200 konum sem sóttu hann voru sennilega 100 á þjóðbúningum.
Á sunnudeginum var svo farið í rútuferð til Voss þar sem systur á staðnum tóku á móti gestum með kaffi og vöfflum og eftir skoðunarferð um nágrennið buðu þær hópnum í hádegisverð.
Á döfinni / Coming up
11. - 18. september 2010
1. - 3. október 2010 - Haustfundur í Munaðarnesi
3. október 2010 - Vinadagur Soroptimista
15. - 17. október 2010
Evrópskir vinadagar, Mijas, Costa del Sol, Spáni
24. október 2010 - Dagur Sameinuðu þjóðanna
24. - 25. október 2010 - Kvennafrídagurinn
- Sunnudagur 24.10. - Alþjóðleg ráðstefna í Reykjavík undir yfirskriftinni Konur gegn kynbundnu ofbeldi
- Mánudagur 25.10. - Konur fylkja liði um land allt
10.desember 2010 - Alþjóðlegur mannréttindadagur - Ákall forseta Alþjóðasambandsins
10. - 14. júlí 2011
19. alþjóðaþing Soroptimista, Montréal, Québec, Kanada




