25 febrúar 2010
Sigríður Ágústsdóttir

Kynnist Hollandi hjólandi

Soroptimistaklúbburinn í Gouda stendur fyrir ferðalagi um vesturhluta Hollands frá 11.-18. september næstkomandi. Gist verður um borð í bátnum "De Noorderzon" í sex nætur og eftir morgunverð alla dagana verður hjólað um 50 km. Farið verður m.a. til Leiden, Delft og Haag. 

Enn eru nokkur pláss laus.  

Á hverju kvöldi mun báturinn bíða með tilbúinn kvöldmatinn og Soroptimistar frá nálægum bæjum og borgum munu bjóða upp á eitt og annað eins og skoðunarferðir og spjall.

Hjólaogbátsferðin hefst í Amsterdam laugardaginn 11.september og lýkur föstudaginn 17. september í Gouda þar sem Soroptimistasystur þaðan bjóða til mikillar veislu og bjóða líka í heimagistingu en á laugardagsmorgni lýkur ferðinni endanlega.

Verð er um 700 evrur og innifalin er gisting allar næturnar, rúmföt og handklæði en um borð í bátnum eru 12 tveggja manna klefar. Innifalinn er allur matur, hjólaleiga, skoðunarferðir, hafnargjöld, skattar og síðasta kvöldið í Gouda ásamt gistingu þar. Eftir 1. apríl hækkar gjaldið í 750 evrur.

Nánari upplýsingar á vefsíðu Evrópusambandsins www.soroptimisteurope.org undir news og síðan undirflokkur events

eða hjá Elly Hoogveld netfang hennar er: veldhoog@xs4al.nl  og líka hjá Sigríði Ágústsdóttur upplýsingafulltrúa Landssambandsins, sigridur@sigridur.net


 Um vefinn  Veftré         A A A

Á döfinni / Coming up

Landssambandsfundur í Mosfellsbæ 28. apríl 2012
31. maí - 3. júní 2012: Afmælishátíð í Búlgaríu
30 June - 8 July 2012: Soroptimist week in Iceland
Gönguferðir Bakka og Selja 2011-2012, sjá dagskrá


Hamraborg 10 | Kópavogur | IS-200 | Sími/Tel: (+354) 891-7179 | soroptimist@soroptimist.is