Klúbbar

Soroptimistaklúbbar á Íslandi eru 17 talsins. Elsti klúbburinn, Soroptimistaklúbbur Reykjavíkur, var stofnaður árið 1959. Nokkur tími leið uns stofnaður var annar klúbbur en Hafnarfjarðar- og Garðabæjarklúbbur var stofnaður árið 1973. Síðan voru klúbbarnir stofnaðir hver af öðrum með nokkuð jöfnu millibili allt þar til 15. klúbburinn var stofnaður en það var Grafarvogskúbbur árið 1994. Nýjasti og yngsti klúbburinn var stofnaður á Suðurlandi í október 2009. 

Útbreiðsla

Flestir klúbbarnir eru á suðvesturhluta landsins. Jafnt og þétt er unnið að útbreiðslustarfi og reynt er að fá konur til að ganga til liðs við samtökin. Í undirbúningi er stofnun klúbba á Suðurlandi og í Húnavatnssýslum og standa vonir til þess að af því geti orðið áður en langt um líður.  

Meira
Prentvæn útgáfa
A A A

Klúbbar og stofndagar þeirra

  1. 1959  19. sept.  Reykjavík
  2. 1973  26. maí    Hafnarfj. og Garðab.
  3. 1975  04. júní    Kópavogur
  4. 1975  05. júní    Keflavík
  5. 1977  25. sept.  Mosfellssveit
  6. 1977  25. sept.  Seltjarnarnes
  7. 1980  18. okt.   Árbær 
  8. 1980  18. okt.   Bakkar og Sel
  9. 1982  13. febr.  Akureyri 
  10. 1982  18. sept.  Hólar og Fell
  11. 1983  04. júní    Húsavík og nágrenni
  12. 1983  15. okt.    Akranes
  13. 1989  27. maí    Skagafjörður
  14. 1991  09. nóv.   Snæfellsnes
  15. 1994  03. sept.  Grafarvogur
  16. 2003  06. sept.  Austurland
  17. 2009  10. okt.   Suðurland
Meira


Hamraborg 10 | Kópavogur | IS-200 | Sími/Tel: (+354) 891-7179 | soroptimist@soroptimist.is