Fulltrúar
Fulltrúaráð
Fulltrúaráð er samsett af fulltrúum klúbba og fer fulltrúaráðið með yfirstjórn Landssambandsins. Fulltrúar fara því með æðsta vald innan Soroptimistahreyfingarinnar í umboði sinna klúbba. Tveir virkir félagar, sem nefnast fulltrúar, koma fram fyrir hönd hvers klúbbs og eru kosnir til tveggja ára í senn, einn fulltrúi hvort ár. Varafulltrúar eru kosnir á sama hátt og koma þeir einir í stað fulltrúa sem getur ekki starfað eða hefur verið kjörinn í Landssambandsstjórn.
Starfstími og starf fulltrúa
Starfstími fulltrúa er tvö ár og hefst 1. október ár hvert. Fulltrúar skulu mæta á aðalfundi Landssambandsins (Landssambandsfund) og aðra fundi (haustfundi) sem boðaðir eru í málefnum Landssambandsins. Allar ákvarðanir er varða störf Landssambandsins eru teknar af fulltrúaráðinu. Auk fulltrúa sitja eftirfarandi aðilar Landssambandsfund sem ráðgefandi aðilar; stjórn Landssambandsins, sendifulltrúar, verkefnastjórar, formenn fastanefnda og formenn annarra nefnda. Aðeins fulltrúar hafa atkvæðisrétt á Landssambandsfundi. Nánari upplýsingar um starf fulltrúa eru í starfslýsingu.
Tengsl fulltrúa við klúbba
Nauðsynlegt er að fulltrúar hafi góð tengsl við stjórn klúbba sinna þar sem fulltrúar eiga að koma fram fyrir hönd síns klúbbs á Landssambandsfundum. Margar klúbbstjórnir boða fulltrúa sína á alla stjórnarfundi í klúbbum en mikilvægt er að hafa hugfast að samkvæmt IX. grein klúbblaga, 4. lið, eiga fulltrúar að sitja að minnsta kosti fjóra stjórnarfundi á ári í sínum klúbbi.
Skýrslur fulltrúa
Fulltrúar skulu gefa skýrslu í klúbbum sínum eftir hvern aðalfund Landssambandsins um málsmeðferð og samþykktir funda eins fljótt og unnt er. Fulltrúar skulu einnig gera grein fyrir því sem hæst bar á haustfundi á næsta félagsfundi eftir haustfund.
Prentvæn útgáfa