Saga forsetakeðjunnar

Forseti Landssambandsins ber jafnan embættistákn um hálsinn, silfurkeðju með stórum náttúrusteini. Kristín Einarsdóttir upplýsingafulltrúi Landssambandsins hefur safnað saman upplýsingum um sögu keðjunnar sem ávallt er nefnd forsetakeðjan og birtist grein hennar í marsblaði Fregna árið 2006. Eftirfarandi er unnið úr grein Kristínar.

Hugmynd

Stofnfundur Soroptimistasambands Íslands var haldinn 8. júní 1974 og hann sátu systur úr Reykjavíkurklúbbi og Hafnarfjarðar- og Garðabæjarklúbbi ásamt fulltrúum úr væntanlegum Soroptimistaklúbbum í Kópavogi og Keflavík. Á þessum fundi bar Margrét Guðmundsdóttir tannsmiður í Reykjavíkurklúbbi fram tillögu um að Landssambandið eignaðist forsetakeðju. Lagði hún fram myndarlegt framlag og hvatti til þess að safna yrði innan klúbbanna fyrir veglegri keðju. Tillögunni var vel tekið en sambandið átti ekki neina sjóði til framkvæmda. Leitað var til Ragnheiðar Jónsdóttur listakonu í Hafnarfjarðar- og Garðabæjarklúbbi og hún beðin um hugmynd að keðju.

Teikning keðju – hugvit kvenna

Ragnheiður kom með teikningu að keðju sem var kynnt á fyrsta Landssambandsfundinum í Hafnarfiði árið 1975. Við könnun á kostnaði við smíði hennar kom í ljós að það myndi kosta mun meira en það sem safnast hafði í keðjusjóð. Systur misstu ekki móðinn, mikið var rætt um hvernig unnt væri að smíða ódýrari keðju sem væri samboðin Soroptimistum. Þá kom Lovísa Christiansen innanhússarkitekt í Hafnarfjarðar- og Garðabæjarklúbbi fram með hugmynd um að nota náttúrustein til að einfalda og minnka smíðina. Guðlaug Berglind Björnsdóttir klúbbsystir og  kaupkona í Hafnarfirði kom með nokkra steina sem hún hafði fundið og maður hennar Hallur Ólafsson hafði slípað og bauðst til þessa að gefa Landssambandinu. Valinn var hvítur steinn sem Lovísa teiknaði umgerð um ásamt keðju.

Framkvæmd – verklok

Jóna Valgerður Höskuldsdóttir hjúkrunarfræðingur, fyrsti varaforseti sambandsins, fór með teikninguna og steininn til bróður síns, Árna Höskuldssonar gullsmiðs, og samdi við hann um smíðina. Í upphafi Landssambandsfundar í Kópavogi 1976 setti Margrét Guðmundsdóttir Reykjavíkurklúbbi, sú sem átti hugmyndina og fyrsta framlagið, forsetakeðjuna í fyrsta sinn um háls Halldóru Eggertsdóttur Landssambandsforseta.

Forsetakeðjan sem embættistákn

Á hátíðarfundi sama kvöld setti Halldóra keðjuna um háls Jónu Valgerðar Höskuldsdóttur nýkjörins annars Landssambandsforseta og rakti í stuttu máli tilurð keðjunnar. Söfnunarféð kom frá Reykjavíkurklúbbi og Hafnarfjarðar- og Garðabæjarklúbbi. Sú hefð hefur síðan skapast upp frá því, í lok Landssambandsfundar annað hvert ár, að forseti setur keðjuna um háls verðandi forseta sem tekur við embætti það sama haust og verðandi forseti ber embættistáknið meðan hann ávarpar fundinn. Af framangreindu er ljóst að allir forsetar Soroptimistasambands Íslands til þessa hafa borið forsetakeðjuna.

Meira
Prentvæn útgáfa
 Um vefinn  Veftré         A A A


Hamraborg 10 | Kópavogur | IS-200 | Sími/Tel: (+354) 891-7179 | soroptimist@soroptimist.is