Fastir viðburðir
Landssambandsfundir
Á hverju vori er haldinn aðalfundur sem gengur undir nafninu Landssambandsfundur. Á fundinum gera forseti, sendifulltrúar, gjaldkeri og aðrir embættismenn grein fyrir starfsemi síðasta starfsárs. Fyrir fundinn fá formenn og fulltrúar klúbba skýrslur embættismanna og önnur gögn send til sín með rafrænum hætti og hafa tök á að kynna sér efni skýrslna og taka afstöðu til þeirra ásamt stjórnum sinna klúbba fyrir fundinn.
Landssambandsfundir eru alltaf auglýsir rækilega í Fregnum og dagskrá fundarins er kynnt þar. Fundirnir eru haldnir á vegum klúbbanna til skiptis og hefur sá háttur verið hafður á frá upphafi.
Sá klúbbur sem heldur Landssambandsfund sér um að útvega húsnæði og um alla ytri umgjörð fundarins í samvinnu við stjórn Landssambandsins. Venja er að klúbbsystur þess klúbbs sem hefur veg og vanda af fundinum hverju sinni leggi fram mikla vinnu við undirbúning. Oftar en ekki er boðið upp á menningartengda dagskrá í tengslum við Landssambandsfundi. Forsvarsmenn bæjarfélaga hafa einatt sýnt systrum þann heiður að bjóða þeim til móttöku og kvöldfagnaður er skipulagður eftir Landssambandsfund með hátíðarkvöldverði og skemmtidagskrá sem mjög er vandað til. Landssambandsfundur að vori er kjörið tækifæri fyrir allar systur til að kynna sér starfsemi sambandsins en ekki síður til að kynnast öðrum systrum sem fjölmenna á fundinn alls staðar að af landinu. Gátlisti fyrir skipulagningu Landssambandsfundar er á innri vef.
Haustfundir
Soroptimistasamband Íslands hefur staðið fyrir haustfundum í Munaðarnesi fyrstu helgina í október allt frá 1994. Haustið 2006 var ákveðið að breyta til og var 13. haustfundur sambandsins haldinn að Reykjum í Hrútafirði. Dagskrá haustfunda er í umsjón stjórnar Landssambandsins en fundirnir eru oftast helgaðir innra starfi klúbbanna þótt ekki sé það einhlítt. Fræðsluefni haustfunda er mismunandi frá ári til árs en alltaf eru nokkrir fastir liðir á dagskrá, s.s. frásagnir af sendifulltrúafundi og þingum sem hafa verið haldin á erlendum vettvangi. Auk þess má nefna að stjórnarskipti fara fram á haustfundi því þá er upphaf hvers starfsárs.
Embættismenn klúbba eru hvattir til að mæta á haustfund, einkum fulltrúar sem fara með æðsta vald í umboði sinna klúbba. Mikilvægt er að fulltrúar og aðrir embættismenn tileinki sér allt sem að gagni má koma um þau hlutverk sem embættin fela í sér. Auk þess er haustfundur fyrirtaks tilefni til að komast í burtu frá amstri hversdagsins, fræðast um starfsemi klúbbanna og gleðjast í góðum hópi systra.
8. mars
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir jafnrétti og friði er 8. mars. Hugmyndin að baráttudegi kvenna á rætur að rekja til upphafs 20. aldar. Árið 1975 var alþjóðlegt ár kvenna og ákveðið var hjá Sameinuðu þjóðunum árið 1977 að 8. mars skyldi vera alþjóðlegur kvennadagur Sameinuðu þjóðanna. Margvíslegar upplýsingar um sögu 8. mars má finna á vef Kvennasögusafns Íslands.
3. október
Vinadagur Soroptimista. Þennan dag árið 1921 var fyrsti Soroptimistaklúbburinn stofnaður, í Oakland í Kaliforníu.
24. október
Dagur Sameinuðu þjóðanna. Þennan dag árið 1945 sameinuðust 51 ríki um stofnun hinna Sameinuðu þjóða.
10. desember
Alþjóðadagur Soroptimista og mannréttindadagur Sameinuðu þjóðanna. Ákall forseta Alþjóðasambandsins í tengslum við daginn tengist aðstoð við konur og börn sem eru í mjög brýnni þörf fyrir aðstoð.
Prentvæn útgáfa