15 ágúst 2010
Sigríður ÁgústsdóttirVonir og draumar fyrir alla
Soroptimistar í Noregi stóðu sameiginlega að verkefni á árunum 2005-2009 vegna mansals í Moldóva (Moldavíu), fátækasta landi Evrópu
10. desember ár hvert er svokallað "Ákall alheimsforseta" en þá velur alheimsforseti verkefni sem hún styrkir. Hanne Jensbo frá Danmörku, sem nú er alheimsforseti, valdi 2009 að styrkja þetta verkefni í Moldóvu. Vegna fátæktar í landinu eru konur og stúlkur í mikilli hættu, sér í lagi á minni stöðum þar sem ekkert tekur við eftir hefðbundna skólagöngu við 16 ára aldur. Mörgum ungum stúlkum hefur verið hjálpað og hér getið þið séð stutt myndskeið: