28 febrúar 2010
Forsetabréf 1. mars 2010
Í marsbréfi forseta eru formenn klúbba minntir á að tilkyna formanni Húsavíkurklúbbs um þátttöku á Landssambandsfund. Upplýst er að til stendur að prenta nýjan nafnalista í ágúst nk. Eru ritarar klúbba því beðnir um að koma öllum breytingum á framfæri við umsjónarmann nafnalista, Helgu Óladóttur, við fyrsta tækifæri. Fram kemur í bréfinu að nú vantar aðeins framboð í embætti verkefnastjóra efnahags- og félagslegrar þróunar. Að lokum bendir forseti á heimasíðuna en þar má finna upplýsingar um hina ýmsu sjóði, styrki o.fl. sem vert er að athuga.