Dr. Noël sjóður - skólastyrkur 2010
Dr. Noël sjóður er í umsjón franska landssambandsins og er ætlaður til að styrkja kvenlýtalækni undir 50 ára aldri til að sérhæfa sig á sínu sviði. Umsóknareyðublað og viðeigandi leiðbeiningar eru að finna á ytra vefnum undir "Eyðublöðum" í "Handraðanum". Umsóknarfrestur er til 31.mars nk.
Í handbók um Soroptimistahreyfinguna frá júlí 2003 eru að finna eftirfarandi upplýsingar um ofannefndan sjóð sem er minningarsjóður um Dr. Suzanne Noël. Suzanne lét mjög til sín taka, bæði innan Soroptimistahreyfingarinnar og í starfi sínu, en hún var brautryðjandi í lýtalækningum. Hún hefur verið kölluð móðir Soroptimistahreyfingarinnar í Evrópu sem hún var og er enn á margan hátt.
Eftir dauða hennar árið 1954 var ákveðið að heiðra minningu hennar með því að skrá nafn hennar á stofnskrá sérhvers nýs klúbbs í Evrópu og með því að setja á stofn sjóð sem í rynnu inntökugjöld nýrra félaga til þess að styrkja konur í læknastétt sem vildu sérhæfa sig í lýtalækningum. Styrkir eru veittir á fjögurra ára fresti.
Frekari upplýsingar um minningarsjóðinn eru að finna í ofannefndri handbók, bls. 52-53, en bókina er að finna á ytra vefnum undir "Handbækur" í "Handraðanum".
Á döfinni / Coming up
