Við getum betur
Sameiginlegur fundur fjölda samtaka verður í Ráðhúsi Reykjavíkur mánudaginn 8. mars kl. 17-18.30.
Framsögumenn verða:
Andrés Ingi Jónsson, Framtíð ófæddra barna.
Barabara Kristinsson, Við getum betur.
Guðrún Hallgrímsdóttir, Hælisleitendur.
Helga Sif Friðjónsdóttir, Heilsugæsla fyrir jaðarhópa.
María S. Gunnarsdóttir, Framlag okkar til friðvænlegri heims.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, Fjölmiðlar.
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, Kynbundið ofbeldi.
Kvennakór Háskóla Íslands syngur undir stjórn Margrétar Bóasdóttur.
Prentvæn útgáfa
Klúbbasíður
Í dag 1. mars 2010 var klúbbavefur Soroptimistaklúbbs Hafnarfjarðar og Garðabæjar formlega opnaður.
Klúbbavefir eru nú tilbúnir fyrir þá klúbba sem þess óska.
Prentvæn útgáfa
Forsetabréf 1. mars 2010
Í marsbréfi forseta eru formenn klúbba minntir á að tilkyna formanni Húsavíkurklúbbs um þátttöku á Landssambandsfund. Upplýst er að til stendur að prenta nýjan nafnalista í ágúst nk. Eru ritarar klúbba því beðnir um að koma öllum breytingum á framfæri við umsjónarmann nafnalista, Helgu Óladóttur, við fyrsta tækifæri. Fram kemur í bréfinu að nú vantar aðeins framboð í embætti verkefnastjóra efnahags- og félagslegrar þróunar. Að lokum bendir forseti á heimasíðuna en þar má finna upplýsingar um hina ýmsu sjóði, styrki o.fl. sem vert er að athuga.
Prentvæn útgáfa
Viðlagasjóður (Action Fund)
Ofannefndur sjóður veitir fjárhagsaðstoð og er m.a. ætlaður til stuðnings mannúðarmálum og til að koma af stað fræðsluverkefnum fyrir konur í löndum þar sem Soroptimistaklúbbar starfa eða eru í undirbúningi. Viðeigandi eyðublöð og leiðbeiningar eru að finna á ytra vef undir "Eyðublöð" í "Handraðanum". Umsóknarfrestur er til 2. apríl nk.
Í handbók um Soroptimistahreyfinguna frá júlí 2003 eru að finna eftirfarandi upplýsingar um ofannefndan sjóð.
Prentvæn útgáfa
Dr. Noël sjóður - skólastyrkur 2010
Dr. Noël sjóður er í umsjón franska landssambandsins og er ætlaður til að styrkja kvenlýtalækni undir 50 ára aldri til að sérhæfa sig á sínu sviði. Umsóknareyðublað og viðeigandi leiðbeiningar eru að finna á ytra vefnum undir "Eyðublöðum" í "Handraðanum". Umsóknarfrestur er til 31.mars nk.
Í handbók um Soroptimistahreyfinguna frá júlí 2003 eru að finna eftirfarandi upplýsingar um ofannefndan sjóð sem er minningarsjóður um Dr. Suzanne Noël. Suzanne lét mjög til sín taka, bæði innan Soroptimistahreyfingarinnar og í starfi sínu, en hún var brautryðjandi í lýtalækningum.
Prentvæn útgáfa
Kynnist Hollandi hjólandi
Soroptimistaklúbburinn í Gouda stendur fyrir ferðalagi um vesturhluta Hollands frá 11.-18. september næstkomandi. Gist verður um borð í bátnum "De Noorderzon" í sex nætur og eftir morgunverð alla dagana verður hjólað um 50 km. Farið verður m.a. til Leiden, Delft og Haag.
Enn eru nokkur pláss laus.
Prentvæn útgáfa
Á döfinni / Coming up
8. mars 2010
Alþjóðadagur kvenna
22. mars 2010
16. - 18. apríl 2010
Landssambandsfundur á Húsavík
23. maí 2010
6. alþjóðlega friðarmaraþonið í Kigali, Rúanda
11. - 13. júní 2010
Norrænir vinadagar, Bergen, Noregi
3. - 4. júlí 2010
Sendifulltrúafundur, Gent, Belgíu
10. - 14. júlí 2011
19. alþjóðaþing Soroptimista, Montréal, Québec, Kanada
