Norrænir vinadagar í Bergen 2010
11.- 13. júní voru haldnir norrænir vinadagar í Bergen í Noregi. Frá Íslandi fóru Guðrún Erla Björgvinsdóttir forseti, Arnheiður Ingólfsdóttir, Bakka- og Seljaklúbbi, og Heiður Vigfúsdóttir, Reykjavíkurklúbbi, ásamt eiginmanni sínum Birgi Guðjónssyni.
Forsetafundur
var haldinn kl. 10:00-17:00 á föstudeginum og fjallaði hann að mestu um yfirlýsinguna sem skrifað var undir á vinadögum í Reykjavík 2008 um að vinna gegn mansali og öllu ofbeldi á konum.
Á laugardeginum fluttu allir forsetar skýrslu um það sem gert hefur verið í hverju landi frá 2008 til dagsins í dag. Þá voru einnig fluttar skýrslur um "Soroptimists go for water" og Sierra Leone verkefnin. Eftir hádegismat á laugardeginum gengu konur fylktu liði niður í miðbæ Bergen, allar klæddar einhverju purpuralitu og mótmæltu þannig mansali og öllu ofbeldi á konum.
Á laugardagskvöldinu var hátíðarkvöldverður og af þeim 200 konum sem sóttu hann voru sennilega 100 á þjóðbúningum.
Á sunnudeginum var svo farið í rútuferð til Voss þar sem systur á staðnum tóku á móti gestum með kaffi og vöfflum og eftir skoðunarferð um nágrennið buðu þær hópnum í hádegisverð.
Á döfinni / Coming up




