Júní útgáfa TIS, The International Soroptimist
Júní útgáfa TIS, The International Soroptimist er komin á veraldarvefinn.
Þar segir ritstjórinn, Sheila Manchester, hversu vel Soroptimistar um heim allan tóku þessari nýbreytni að geta gerst áskrifendur og lesið blaðið á rafrænu formi og að auki fá það sent til sín frítt, beint í pósthólfið. Gerist áskrifendur hér, editor@soroptimistinternational.org
Grein er í blaðinu um langtímaverkefni Alþjóðasambandsins sem framundan eru og kosið verður um í Montreal næsta sumar, Ofbeldi gegn konum eða Menntun og formennska. Sagt er frá tengslum Soroptimista við UNICEF, sagt frá hjálparstarfi á Haiti, grein um starf tólf klúbba í Danmörku vegna loftslagsbreytinga í Kenía og grein er um svokölluð mikrólán eða sms-lán, svo eitthvað sé nefnt.
Á döfinni / Coming up
11. - 18. september 2010
1. - 3. október 2010 - Haustfundur í Munaðarnesi
3. október 2010 - Vinadagur Soroptimista
15. - 17. október 2010
Evrópskir vinadagar, Mijas, Costa del Sol, Spáni
24. október 2010 - Dagur Sameinuðu þjóðanna
24. - 25. október 2010 - Kvennafrídagurinn
- Sunnudagur 24.10. - Alþjóðleg ráðstefna í Reykjavík undir yfirskriftinni Konur gegn kynbundnu ofbeldi
- Mánudagur 25.10. - Konur fylkja liði um land allt
10.desember 2010 - Alþjóðlegur mannréttindadagur - Ákall forseta Alþjóðasambandsins
10. - 14. júlí 2011
19. alþjóðaþing Soroptimista, Montréal, Québec, Kanada
