Fyrsta golfmótið heppnaðist sérlega vel
Fyrsta golfmót Soroptimistaklúbbs Reykjavíkur (SR) var haldið laugardaginn 5. júní sl. og var aðsókn frábær. Eitthundrað fimmtíu og sjö konur kepptu í góðu veðri og var dásamlegt að sjá þær um allan völl, léttklæddar og glaðar. Systur í SR sáu um að ræsa konur til leiks, gefa þeim kaffi og heimabakaðar kleinur og smákökur. Systur sáu einnig um að selja keppendum varning klúbbsins og var þar margt góðra muna, t.d. prjónakjólar, peysur, vesti, húfur og sokkar, einnig svokallaðir Steinupokar sem eru afar þægilegir til að hafa allt í röð og reglu í ferðatöskunni.
Um kvöldið fór fram verðlaunaafhending og voru vinningar glæsilegir, s.s. flug fyrir tvo til Evrópu, fatnaður eftir íslenska hönnuði, skartgripir, golfskór, málverk, keramik, snyrtivörur og margt fleira. Einnig fengu allir keppendur teiggjafir (afhentar við fyrstu holu).
Hagnaður af golfmótinu var góður. Hann er notaður til að styrkja sumarnámskeið einhverfra barna en þau eru haldin af Umsjónarfélagi einhverfra og Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Soroptimistaklúbbur Reykjavíkur er afar þakklátur öllum þeim sem tóku þátt í mótinu og þeim mörgu sem lögðu fram vinnu til að allt gengi sem best.
Mikill hugur er í systrum í SR að endurtaka leikinn að ári og hefur 4. júní 2011 verið nefndur.
Myndir frá mótinu má sjá á slóðunum http://picasaweb.google.com/sor.reyk/GolfmotSoroptimistaklubbsReykjavikur2010 og http://igolf.is/?p=myndir&album=63.
Fyrir hönd mótanefndar,
Emilía Sigmarsdóttir
Á döfinni / Coming up
11. - 18. september 2010
1. - 3. október 2010 - Haustfundur í Munaðarnesi
3. október 2010 - Vinadagur Soroptimista
15. - 17. október 2010
Evrópskir vinadagar, Mijas, Costa del Sol, Spáni
24. október 2010 - Dagur Sameinuðu þjóðanna
24. - 25. október 2010 - Kvennafrídagurinn
- Sunnudagur 24.10. - Alþjóðleg ráðstefna í Reykjavík undir yfirskriftinni Konur gegn kynbundnu ofbeldi
- Mánudagur 25.10. - Konur fylkja liði um land allt
10.desember 2010 - Alþjóðlegur mannréttindadagur - Ákall forseta Alþjóðasambandsins
10. - 14. júlí 2011
19. alþjóðaþing Soroptimista, Montréal, Québec, Kanada
